Einar, Siggi og Sæbjörn
Einar Hálfdáns, Siggi Bjartar og Sæbjörn lönduðu allir í gær, Einar landaði 2.899kg 2550kg af Steinbít, Siggi var 4.763kg og þar af 3.869kg af steinbít og Sæbjörn var 306kg. Þetta var góður dagur fyrir sjómenn þar sem fiskverð eru mjög góð þessa daganna. Allir bátarnir 3 eru á sjó í dag og vonandi verður áfram finasta veiði.
Þokkaleg veiði í gær
Þokkalegasta veiði var hjá þeim Einar Hálfdáns og Páli Helga í gær, en Einar landaði 5.498kg og var það mest steinbítur eða 4.0617kg. Páll landaði 2.989kg og uppistaðann þar var þorskur, eða 2.554kg. Bæði Einar Hálfdáns og Siggi Bjartar eru í hafinu í dag og var ágætis veiði á fyrstu balanna.
Ágætis helgar vedur...
Páll Helgi var eini báturinn sem landaði hjá okkur í gær og vigtaði aflinn 2.142kg. Uppistaða aflans var þorskur sem seldist á 351kr. Einar Hálfdáns lagði 32 bala í gær sem hann dregur í dag og verður hann seinni parts dags í landi. Siggi Bjartar er á leið í hafið en Gunnar Leós er enþá stopp vegna viðgerðar. Ágætis veðurspá er fyrir sjómenn yfir helgina og geri ég ráð fyrir að menn rói bæði laugardag og sunnudag.
Ný heimasíða FMBS
Fiskmarkaður Bolungarvíkur og Suðureyrar tekur nýja heimasíðu í notkun mánudaginn 22. Mars. Þetta verður þjónustusíða markaðarins og mun hún innihalda allar upplýsingar um opnunartima og gjaldskrá FMBS. Við verðum einnig með stuttar fréttir um aflabrögð þeirra báta sem eru i viðskiptum við markaðinn.
Síða 2 af 2