Ágætis helgar vedur...
Páll Helgi var eini báturinn sem landaði hjá okkur í gær og vigtaði aflinn 2.142kg. Uppistaða aflans var þorskur sem seldist á 351kr. Einar Hálfdáns lagði 32 bala í gær sem hann dregur í dag og verður hann seinni parts dags í landi. Siggi Bjartar er á leið í hafið en Gunnar Leós er enþá stopp vegna viðgerðar. Ágætis veðurspá er fyrir sjómenn yfir helgina og geri ég ráð fyrir að menn rói bæði laugardag og sunnudag.