Línufiskur fiskveiðiárið 2009-2010. 1/9.09 - 31.08.10.

Línufiskur. 2009-2010. Uppboðssala.

    Þorskur: óslægt       slægt      Meðalverð. ósl/slægt
                 324.kr     372.kr           331.kr.
    Ýsa:       267.kr     225.kr           273.kr.
    Steinb:   197.kr     250.kr           240.kr.
    Koli:                    223.kr           223.kr.   


   Meðalverð á fleirri veiðafærum kemur næstu daga.           

Strandveiðum lokið.

    Þar sem styttist í að nýja kvótárið byrji,þá er gott að gera upp það gamla.  Byrjum á strandveiðunum.
Heildarmagnið sem kom til FMBS var ca. 205.tonn. Meðalverð á þorski ca. 310.kr/kg  óslægt. Þar sem meðalverð byggist
á öllum stærðum/þyngtum, án tillit til flokka. Sumir flokkar voru lægri aðrir hærri. Eingöngu miðað við uppboð. Á næstu
dögum segjum við frá meðalverðum á öðrum tegundum efitir veiðarfærum.

Til Hamingju með daginn sjómenn!!

FMBS óskar öllum sjómönnum og fjöskyldum þeirra til hamingju með daginn.

Strandveiðinn byrjar vel

Gugga ís 63 er á strandveiðum.
Gugga ís 63 er á strandveiðum.
Strandveiðinn hófst á mánudaginn með miklum látum, en 19 færabátar lönduðu hjá Fmbs í Bolungarvík.
Flestir voru á pari varðandi aflann en aðeins tveir bátar lönduðu meira en leyfilegt er.
Allir þessir bátar lönduðu aftur í gær og eru flestir af þeim farnir á hafið í dag. Fiskurinn sem menn eru að veiða er heilt yfir mjög góður, bl, góður/ bl, stór holt og bolt. Frágangurinn hjá sjómönnum er einnig góður, og allir bátarnir eru með fiskinn í krapa. Verðið hefur verið þokkalegt miðaðvið framboð á mörkuðum og eigum við frekar von á hækkun en lækkun á þessum fallega fiski.

Gosið hefur áhrif á fiskverð..

Gosið hefur áhrif á fiskverð
Gosið hefur áhrif á fiskverð
Eldgosið í Eyjafjallajökli er farið að hafa gríðaleg áhrif á fiskverð, en verð á Steinbít hefur ekki dottið svona niður í langan tima, en verð á per kg var aðeins 235-240 kr í  á mörkuðum hérna á Vestfjörðum í gær. Við verðum að vona það flugsamgöngu fari að komast í rétt horf og að sjómenn taki bros á vör á nýan leik. Annars hafa aflabrögð verið góð upp á síðkasti og landaði Einar Hálfdáns rúmum 11, tonnum á sunnudag.

Einhvað að glæðast

Kópur BA
Kópur BA
Veiðinn er einhvað að glæðast hjá mönnum en Einar Hálfdáns landaði 5.473kg Snjólfur var með 5.805kg Páll Helgi 3.613kg og Sæbjörn landaði 1.458kg Berti G dróg reindar bara 7 bala í gær og var með tæp 600kg og svo bættist nýr bátur við hjá okkur í gær en það er Kópur BA sem er gerður út frá Tálknarfirði, en hann landar meiri hluta aflans í vinslu í Súðavík en setti  2.039kg á markaðinn í gær.

Einar, Páll og Sæbjörn á sjó í Bolungarvík, Berti G á Súganda...

Berti G Ís
Berti G Ís

Einar Hálfdáns ís fór í morgun með 60 bala, þeir gerðu ráð fyrir að draga um helming þeirra í dag og byða með restina til morguns, annars eru þeir Páll Helgi og Sæbjörn einnig á sjó í dag. Berti G fór frá Súganda í morgun og verður hann í landi um 5 leitið.  Vonadi verða aflabrögð góð, en það skýrist þó ekki fyrr en fer að lýða á daginn. Gunnar Leós er enþá bilaður og gerum við ráð fyrir að Siggi Bjartar fari á hafið á morgun.

Aðeins einn í hafinu í dag

Einar Hálfdáns ÍS
Einar Hálfdáns ÍS
Aðeins einn bátur er á sjó í dag og það er Einar Hálfdáns, hann er með 40 bala og ætlar að vera í landi um kl: 14:00.
Í gær voru bæði Einar H og Siggi B á sjó, Einar landaði 3.521kg og Siggi B landaði 2.485kg. Næsti róður hjá þessum bátum verður sennilega ekki fyrr en á mánudaginn 5. Apríl, en fyrsta uppboð eftir páska er þriðjudaginn 6. April.

Síðasta uppboð á miðvikudag

Bolungarvík
Bolungarvík
Síðasta uppboð fyrir páska er á miðvikudaginn, og siðasta ferð  suður er einng á miðvikudag. Fyrsta uppboð eftir páska verður ekki fyrr en þriðjudaginn 6 apríl. En Einar, Siggi og Sæbjörn lönduðu allir í gær Einar var með 3.505kg Siggi 4.221kg og Sæbjörn landaði 400kg.

Einar, Siggi og Sæbjörn

Siggi Bjartar ÍS
Siggi Bjartar ÍS
Einar Hálfdáns, Siggi Bjartar og Sæbjörn lönduðu allir í gær, Einar landaði 2.899kg 2550kg af Steinbít, Siggi var 4.763kg og þar af 3.869kg af steinbít og Sæbjörn var 306kg. Þetta var góður dagur fyrir sjómenn þar sem fiskverð eru mjög góð þessa daganna. Allir bátarnir 3 eru á sjó í dag og vonandi verður áfram finasta veiði.
Fyrri síða
1
2Næsta síða
Síða 1 af 2
Vefumsjón